Forsíða  |  Hafa Samband 




20.09.2004
Sigurbjörn Guðmundsson skipstjóri á Sturlu GK 12

Þann 15. september s.l. kom Sturla GK 12 úr sinni fyrstu veiðiferð og landaði 46 tonnum.
Sturla GK, sem áður hét Guðmundur VE og var nótaskip, kom úr breytingum sem gerðar
voru á skipinu í Póllandi í sumar þar sem skipinu var m.a. breytt til línuveiða og í það sett fullkomin
beitningavél frá Mustad. Skipið var einnig sandblásið og málað.  Af þessu tilefni var skipstjórinn
Sigurbjörn Guðmundsson tekinn tali og hann spurður um hverning þessi fyrsta veiðiferð hafi
gengið.

Fyrsta veiðiferðin gekk mjög vel og í raun vonum framar.  Það koma alltaf upp einhver smávægileg
atriði sem þarf að lagfæra og breyta þegar nýtt skip er tekið í notkun en þau voru fá og einföld
úrlausnar.  Þær breytingar sem gerðar voru á skipinu í Póllandi tókust mjög vel í alla staði.  Einnig
verður að geta þess að okkar menn, úr vélsmiðju- og trésmíðaverksætði fyrirtækisins, stóðu sig
einstaklega vel, en þeir sáu um smíði og niðursetningar á aðgerðar og þvottakerfi á millidekki.

Öll aðstaða um borð í skipinu er til fyrirmyndar bæði hvað varðar vinnuaðstöðu og ekki síður
aðbúnað fyrir áhöfn skipsins.

Sigurbjörn sagði að það væru 14 í áhöfn skipsins og hún væri nánast sú sama og var með honum
á Albatros GK sem seldur var til Bolungavíkur.  Hér er um að ræða mjög samheldna áhöfn sem
var einnig með mér á gömlu Sturlu sem var ísfisktogari en hann var seldur til Ísafjarðar.

Skipið er í alla staði mjög glæsilegt og vel búið, við erum með um borð um 46.000 króka á
rekkum.  Tækjabúnaður í brú skipsins var að hluta til endurnýjaður.  Það var nýtt fyrir mér að
andæfa og horfa einungis á tölvuskjái í brúnni, en það eru myndavélar víða um og utaná skipinu
sem gera manni þetta kleift.  Þetta gekk mjög vel en það var komin á þetta reynnsla um borð
í Þuríði Halldórsdóttur GK.  Þetta er orðin mjög góður línufloti hjá fyrirtækinu þ.e. fimm öflug
línuskip sem munu fiska fyrir landvinnslu fyrirtækisins.

En hverning er svo að fara af trollinu yfir á línuskip?

Það er bara fínt þó að maður sakni trollsins. Gamla Sturlan er gott skip en orðin nokkuð
gamalt  og þar þurfti að fara gera margt til úrbóta.   Þetta skip sem ég er með núna er
mjög öflug og örugglega hægt að fiska vel á það, ef þeir þarna á Alþingi hætta að skerða kvótann
svona á hverju ári, auðvitað verður ekkert hægt að fiska ef kvótinn verður smátt og smátt tekinn
af okkur og færður öðrum, segir Sigurbjörn að lokum

 

 



Tilbaka

Þorbjörn | Hafnargata 12 | 240 Grindavik | S:420 4400 | th@thorfish.is