Í morgun, mánudaginn 11. ágúst, landaði Ágúst GK í Grindavíkurhöfn, 20 tonnum af bolfiski. Ferðin var sú fyrsta eftir þær breytingar sem gerðar höfðu verið á honum í Póllandi í febrúar síðastliðnum. Af því tilefni tókum við Kolbein Marinósson skipstjóra tali til að forvitnast um hvernig hafi gengið, en veiðarnar höfðu staðið yfir í 5 daga „hér rétt hjá“ eins og hann orðaði það.
Hann sagði að þessi ferð hafi gengið ágætlega. Að vísu hafi eitt og annað komið upp á þegar út á hafið var komið, en skipverjar hafi leyst þau mál vel úr hendi. „Annars erum við hæstánægðir“. Hann bætti við að í raun hafi Ágúst GK farið einu sinni áður í prufuferð en sú ferð stóð tók einungis nokkrar klukkustundir svo hún telst varla með.
Áhöfnin skipsins telur 14 manns og láta þeir mjög vel af allri vinnuaðstöðu um borð. „Vinnuaðstaðan gerist í raun ekki betri og erum við við mjög ánægðir með hvernig til hefur tekist með breytingarnar á millidekkinu“ sagði Kolbeinn. Hann hélt síðan áfram: „Það má svo sannarlega hrósa fyrirtækinu fyrir útsjónarsemi í þessum málum. Skip eins og þetta hafa átt það á hættu að fara bara í brotajárn þar sem fá verkefni eru fyrir þau. Skipið var í raun óhentugt fyrir nóta- og togveiði vegna stærðarinnar. Því er það gleðilegt að Þorbjörn Fiskanes hf. hafi látið breyta skipinu í línuskip. Við það fær það nýtt hlutverk og nýtist vel á komandi árum“.
Þess má geta að um borð í skipinu er ný krapavél, sú fyrsta sinnar tegundar hér í Grindavík. Það gerir það að verkum að ekki þarf að taka ís úr landi í upphafi ferðarinnar. Það hefur marga góða kosti því ísinn átti það til að bráðna hratt ef hitastig hækkaði í sjónum. „Við erum því sjálfum okkur nógir í þessum efnum“. Hann bætti við að lokum að fyrir 10 árum hefði engan órað fyrir það hér í Grindavík að stór hluti flotans yrði línuskip. „Svona breytast hlutirnir hratt“ Með þessum orðum kveðjum við Kolbein og þökkum honum fyrir spjallið.
Tilbaka |